Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Að bjóða hættunni heim

Það vantar víða heildstæða hugsun í hönnun húsa. Þök, jafnvel nýrra og nýlegra húsa, halla stundum að út(inn)gönguleiðum og þar þyrftu í það minnsta að vera snjógildrur. Þetta býður hættunni heim á líkams- og eignatjóni. Spyrja mætti hvernig tryggingamálum sé háttað að þessu leyti gagnvart dauðsföllum og líkamstjóni.
mbl.is Fá tjónið ekki bætt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þó ég drekki daglega og drekki stundum mikið

Þó ég drekki daglega

og drekki stundum mikið,

drekk ég fremur faglega

og fer ekki yfir strikið.

- Þetta flaug í kollinn á mér þegar ég las fréttina um kaffidrykkjuna. Ég á bara eftir að finna út úr því hver orti.

 

.kaffi

 


mbl.is Segja mikla kaffidrykkju geta leitt til ofskynjana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konur eru farnar að sjá ljósið!

Þetta er aldeilis skemmtilegt! Loksins eru konur farnar að átta sig á því hversu miklir dýrgripir þroskaðir og lífsreyndir karlmenn eru. Nú fer maður virkilega að hlakka til elliáranna.

OldManOfTheSea_350

Verst hvað tíminn silast hægt áfram ...


mbl.is Leitar að tíræðum eiginmanni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landráðamaður

Það var barið harkalega að dyrum með öskrum og óhljóðum. Ég opnaði og úti stóð þungvopnuð sérsveitin miðandi á mig og öskrandi:

Upp með hendur "mother fucking" moggabloggari!

 

Frontliners

Ég hrökk upp og það var órætt bros á fúlskeggjuðu svitastorknu andlitinu.


mbl.is Íranskur bloggari handtekinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofurraunsæið leysir rómantík og ástarkjaftæði af hólmi

Í stóru augu þín ég leit

1165_two_chatty_women_talking_on_a_couch

og ég týndi mér um stund

og hönd þín var svo heit.

Rómantíkin er nú í andarslitrunum. Ofurraunsæið er farið að læða köldum krumlum sínum undir sængur elskenda. Nú heitir þetta ekki lengur að njóta ásta eða elskast, heldur er þetta talin hagkvæm dægradvöl. Karlmenn eru samir við sig og setja kynlífið í fyrsta sæti. Konurnar eru miklu dannaðri og setja slúður með vinkonum í fyrsta sæti en kynlífið í annað sætið.

Ég vil fá hana strax

og ekkert ástarkjaftæði og rómantík hér.

(Ljóðabrotin eru úr textasafni húsvísku Greifanna).


mbl.is Spara pening með auknu kynlífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ást í augum barna

True_Love_Is_Forever

Fékk þennan hugnæma texta sendan frá yngri systur minni. Maður á til mjúkar hliðar og því birti ég textann hér aðeins styttan og lagfærðan. 

„Þegar amma fékk liðagigt og gat ekki beygt sig niður til að lakka táneglurnar gerði afi minn það alltaf fyrir hana. Það er ást.“ Rebekka 8 ára.

„Það er ást er þegar stelpa setur á sig ilmvatn og strákur setur á sig rakspíra og þau fara út og lykta af hvort öðru.“ Karl 5 ára.

„Ást er þegar þú ferð út að borða með einhverjum og hann gefur þér frönskurnar sínar.“ Chrissy 6 ára.„

Ást er það sem lætur þig brosa þegar þú ert þreytt.“ Terri 4 ára.

„Það er ást er þegar mamma gerir kaffi handa pabba og hún tekur sopa áður en hún gefur honum það,  til þess að vera viss um að bragðið sé í lagi.“ Danny 7 ára.

„Það er ást er þegar þið kyssist öllum stundum. Síðan þegar þið eruð þreytt á að kyssast viljið þið enn vera saman og tala meira. Mamma mín og pabbi eru þannig. Það er ógeðslegt þegar þau kyssast.“ Emily 8 ára.

„Ást er það sem er með þér í stofunni á jólunum ef þú hættir að taka upp gjafirnar í smá stund og hlustar.“ Bobby 7 ára.

„Það er ást þegar þú segir strák að þér finnist skyrtan hans falleg og hann gengur þá í henni alla daga.“ Noelle 7 ára.

„Mamma mín elskar mig meira en nokkur annar. Þú sérð engan annan kyssa mig góða nótt á kvöldin.“ Clare 6 ára.

„Ást er þegar mamma gefur pabba besta bitann af kjúklingnum.“ Elaine 5 ára.

„Ást er þegar mamma sér pabba illa lyktandi og sveittan og segir enn að hann sé myndarlegri en Robert Redford.“ Chris 7 ára.

„Ást er þegar hvolpurinn þinn sleikir þig í framan þó þú hafir skilið hann eftir einan allan daginn.“ Mary Ann 4 ára.

„Ég veit að stóra systir mín elskar mig vegna þess hún gefur mér alltaf gömlu fötin sín og neyðist til þess að fara í búðina og kaupa ný.“ Lauren 4 ára.


Er ást og væntumþykja bara munaður þegar vel árar?

Ást, hvað er nú það?

Er það bara þriggja stafa orð,

notað í skáldsögum?

sungu húsvísku Greifarnir forðum.

Í frétt á mbl.is, um elstu varðveittu kjarnafjölskylduna, sem ku hafa verið uppi fyrir um 4.600 árum, segir Dr Wolfgang Haak um bein hennar:

Þau eru lögð til af mannlegri natni sem gefur til kynna að einhverjum hafi þótt vænt um þau. Við verðum eftir sem áður að fara varlega þegar kemur að mati tilfinninga í fornleifum. Við megum ekki ganga út frá nútímagildismati. Við vitum ekki hversu erfitt mannlífið var á þessum tíma eða hvort það var yfir höfuð svigrúm til væntumþykju.

Það sem slær mig eru þessi orð Dr. Wolfgang:... eða hvort það var yfir höfuð svigrúm til væntumþykju.

Er ást og væntumþykja aðeins "lúxusvara" eða munaður þegar vel árar?

Bjork_-_All_Is_Full_Of_Love_-_front
mbl.is Elsta kjarnafjölskyldan myrt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband