Færsluflokkur: Matur og drykkur
Hvers vegna eru Íslendingar þorskar og sauðir?
16.1.2009 | 14:08
Við lesturinn kom mér ósjálfrátt í hug kvæði eftir snillinginn Kristján frá Djúpalæk, sem ég skrifa hér eftir minni:
"Sé það satt er sannað telja,
synir Batúm lands,
að sá er étur annan,
öðlist eiginleika hans;
maður skilur samtíð sína,
sýnu skár í nauð;
Íslendingar allt frá Snorra
átu þorsk og sauð."
Batúm menn ku hafa verið mannætur og sóst eftir góðum genum úr fæðunni. Líklega hafa Íslendingar framan af fremur étið þorskinn en ýsuna, af þeirri einföldu ástæðu að miklu meira var af þorskinum. Svo varð þorskurinn dýrmæt útflutningsvara á 19. öldinni og í íslensku eldhúsum varð mottóið: Ýsa er það heillin!
Ákvörðun um aukningu vonbrigði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Matur og drykkur | Breytt 28.2.2010 kl. 07:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þó ég drekki daglega og drekki stundum mikið
15.1.2009 | 13:47
Þó ég drekki daglega
og drekki stundum mikið,
drekk ég fremur faglega
og fer ekki yfir strikið.
- Þetta flaug í kollinn á mér þegar ég las fréttina um kaffidrykkjuna. Ég á bara eftir að finna út úr því hver orti.
Segja mikla kaffidrykkju geta leitt til ofskynjana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Matur og drykkur | Breytt 16.1.2009 kl. 18:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)