Allar byssur með 50 % afslætti

guns_girl

Eldri maður og kunningi minn á Suðurlandi, sem ég tala stundum við í síma, sagði mér í fyrradag að hann hefði verið að heyra það í fréttum að byssusala hefði tekið gríðarlegan kipp síðasta mánuðinn. Hann sagði að þetta gerðist alltaf þegar harðnaði á dalnum eins og nú. Við vorum töluvert að velta þessu fyrir okkur og vorum býsna spakir.

Ég var t.d. að spá í það hvort að menn væru að auka veiðar til búdrýginda í kreppunni en kunningi minn taldi það af og frá. Í flestum tilfellum væru menn að kaupa byssurnar í hernaðarlegum tilgang, því að menn væru farnir að hafa trú á mögulegri borgarastyrjöld eða byltingu. Það fór óneitanlega um mann við þessar hugleiðingar og þetta sat í mér og olli mér töluverðu hugarangri.

Svo var ég ég að væflast annars hugar í eldhúsinu í dag, þegar ég heyrði allt í einu auglýsingu í útvarpinu sem olli því að það var eins og kalt vatn rynni á milli skinns og hörunds:

"Í þessari viku færðu allar byssur með 50 % afslætti ef þú sækir" ...

Blóðið fraus bókstaflega í æðum mínum. Hvað var eiginlega í gangi?! Síðan kom niðurlagið á auglýsingunni:

"Hrói höttur".

Þá kviknaði skyndilega ljós í sálartetrinu og það varð skyndilegt spennufall. Ég sprakk úr hlátri! Ég hafði sem sagt heyrt "byssur" en það átti að vera "pizzur".

Ég mæli með norðlenskum upplesurum í auglýsingum. Annað er hættulegt fyrir heilsu miðaldra kalla!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Blóðug borgarastyrjöld?    Það vantar snjó þá gætum við notað snjókúlur.

Hólmdís Hjartardóttir, 4.12.2008 kl. 02:08

2 Smámynd: Jóhann G. Frímann

Það er nóg af snjó hér fyrir norðan.

Jóhann G. Frímann, 4.12.2008 kl. 09:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband